Um sushi
Saga sushi
Sushi er hefðbundinn japanskur réttur (diskur) sem á sér yfir 1300 ára langa sögu. Öldum saman var sushi notað sem varðveisluaðferð þegar ekki var um margt að velja við varðveislu matvæla.
Hrár hreinsaður fiskur var þá lagður á milli salts og hrísgrjóna og svo var stein lagður yfir til að pressa. Nokkrum vikum síðar höfðu fiskurinn og hrísgrjónin gerjast og þá var sushi-ið loks tilbúið.
Síðan hefur sushi farið langan veg um aldir og þróun. Í dag á þessi fallegi réttur ekki einungis að þjóna bragðlaukunum heldur einnig auganu og hefur þróast samhliða sem matur og list.
Sushi fæst nú um allan heim og fara vinsældir þess sívaxandi (vinsældir sushi hafa borist eins og eldur í sinu um allan heim). Sú þróum hefur auk ferskleika og frábærs bragðs, haldist í hendur við vaxandi heilsuvakningu almennings, enda samanstendur sushi einungis af hollu, fitusnauðu hráefni.
Hjá Sushismiðjunni getur þú valið um hefðbundið sushi með sjávarfangi, eða grænmetis-sushi.
Um hráefnið
Sushi leikur ekki aðeins við bragðlaukana, heldur er það einnig mjög hollt. Það er samsett úr nokkrum mismunandi hráefnum sem hvert um sig aðstoðar líkamann með mismunandi daglegar þarfir.
Fiskur og annað sjávarfang
Sushi inniheldur fáar hitaeiningar (er hitaeiningasnautt). Hvítur fiskur eins og lúða og ýsa innihalda innan við 100 kcal í 100 gr og jafnvel feitari fiskur eins og túnfiskur inniheldur undir 200 kcal í 100 gr. Feitur fiskur eins og makríll, sardínur og síld innihalda hátt hlutfall omega-3 fitusýra sem geta verið áhrifarík forvörn gegn hjarta og æðasjúkdómum, eins og hjartaáföllum og heilablóðföllum.
Hrísgrjón
Góð uppspretta kolvetna og próteina. Hrísgrjón innihalda ekki gluten svo þau henta fyrir fólk með hveitiofnæmi (kornofnæmi).
Engifer
Engifer er gott náttúrulegt sýklalyf. Það örvar meltinguna auk þess að styrkja ónæmiskerfið og aðstoða líkamann í baráttu við kvef og flensur.
Hrísgrjónaedik
Hrísgrjónaedik hefur frábæra sótthreinsandi eiginleika sem hafa lengi verið nýttir til varðveislu matar. Hann auðveldar meltingu á sama tíma og hann minnkar hættuna á háum blóðþrýstingi og mildar kvef- og flensueinkenni.
Soya sósa
Soya-afurðir eru próteinríkar og innihalda hátt hlutfall bætiefnanna járns, magnesium og potassium. Þau innihalda einnig kvenhormónin Phytoestrogen sem notuð hafa verið með góðum árangri við einkennum tengdum breytingaskeiði kvenna.
Nori
Sjávarþang er mjög næringarríkt. Það inniheldur protein, MINERALS-sérstaklega iodine- og er einnig ríkt af A, B1, B2, B6, niacin og C vítamínum. Þá varnar það uppsöfnun kólesteróls í æðum.
Vasabi
Vasabi er ríkt af C vítamíni, það örvar framleiðslu munnvatns sem auðveldar meltingu. Vasabi getur virkað líkt og vægt sýklalyf.
